← Back to list

16. desember: El Supremo 8 ára — Paragvæ

Paragvæ er landlukt ríki í Suður-Ameríku sem á sér sögu að mörgu leiti frábrugna öðrum Suður-Ameríkuríkjum. Hið eiginlega nýlendutímabil…

Rommrýni Magga Pjé · 2025-12-16 18:02 · 0 claps · 1.9 min read
#romm #rum #paraguay
Open on Medium ↗
Wiki topics: RAG · RAG & Retrieval SEO · SEO & SEM

16. desember: El Supremo 8 ára — Paragvæ

Paragvæ er landlukt ríki í Suður-Ameríku sem á sér sögu að mörgu leiti frábrugna öðrum Suður-Ameríkuríkjum. Hið eiginlega nýlendutímabil stóð tiltölulega stutt í stórum hluta þess, þar sem margir frumbyggjar svæðisins stóðu undarlega lengi uppí hárinu á spænskum landvinningamönnum og nutu við það aðstoðar margra munka úr Jesúítareglunni. Einnig þá gerðist, eftir nýlendutímann (nánar tiltekið milli áranna 1864–1870), hið svokallaða Paragvæstríð, þar sem Brasilía og Argentína réðust í sameiningu á Paragvæ og á tveimur árum fækkaði íbúum Paragvæ úr u.þ.b. milljón manns í um 300 þúsund, þar af 30 þúsund karlmenn á herþjónustualdri. Þessi stórkostlega blóðtaka breytti samfélagsgerðinni töluvert og hafði meðal annars þau áhrif að ræktarland varð ekki jafndýrt m.v. vinnuafl eins og annarsstaðar í Suður-Ameríku, svo sjálfstæðir kotbændur voru töluvert stærri og fleiri, og stór býli færri, en annarsstaðar. í Paragvæ, sérstaklega austurhluta landsins, er landbúnaður einmitt mikið stundaður; frjósamir árdalir eru kjörlendi fyrir rækt á soja, maís, og (væntanlega neðst í þessum dölum) sykurreyr.

Rommgerð á sér langa hefð í landinu, þar sem áhersla er oft lögð á rétt ger, en hefðbundið paragvæskt rommger er hálfvillt og framleiðir marga estera og getur því búið til mjög bragðmikil og sérstök romm. Eða, það segja heimildirnar mér; ég hef aldrei fyrr smakkað paragværomm. Þetta tiltekna romm auglýsir sig einmitt sem gerjað uppá gamla mátann og svo pott-eimað, sem ætti einmitt líka að tryggja sterkt og sérstakt bragð; áður en það er þroskað fyrst í 8 ár í heimabyggð á tunnum úr heimaræktaðri harðviðartegund, og svo í 9 mánuði á eikartunnum í Frakklandi. Þessar harðviðartunnur setja þannig strik í reikninginn að ég treysti mér ekkert til að spá fyrir um hvernig þetta romm er án þess að smakka fyrst. Sem betur fer, þá…

Liturinn er soldið dökkur, og rauðari en ég er vanur. Lyktin úr glasinu er, já, esterrík og ég á mjög erfitt með að tengja hana við neitt. Þó þarna séu miklir esterar, þá er þetta einmitt ekki neitt jamækafönk. Engir bananar; en töluvert af blóma- og jurtaangan, kannski smá negull, og mögulega pínu vanilla. Bragðið er einmitt líka blómkennt, minnir á landbúnaðarromm, en er samt allt öðruvísi. Þarna eru líka kryddin; negull og vanilla. Eftirbragðið er heitara en maður gerir ráð fyrir með romm sem er bara 40%, en ég finn líka fyrir tré og skóga í því. Þetta var undarlegur sopi, alls ekki vondur, en ég veit bara ekki hvar þetta romm mundi passa í vínskápinn. Mér dettur ekki í hug hvernig ég gæti notað það í kokteila og það er það frábrugðið venjulegri rommum að ef ég opnaði skápinn minn að leita að Rommi þá mundi ég alltaf fara framhjá þessu og grípa eitthvað rommlegra í staðinn. En eins og ég segi, alls alls ekki vont.


메타데이터
post_id
8d32db773b86
slug
16-desember-el-supremo-8-ára-paragvæ-8d32db773b86
url
https://medium.com/@rommrynimp/16-desember-el-supremo-8-%C3%A1ra-paragv%C3%A6-8d32db773b86
canonical_url
https://medium.com/@rommrynimp/16-desember-el-supremo-8-%C3%A1ra-paragv%C3%A6-8d32db773b86
author_url
https://medium.com/@rommrynimp
status
ok
fetched_at
2026-07-14 04:18:11