← Back to list

13. desember: Navy Island XO Reserve — Jamæka

Augun lýstust upp þegar ég sá hvað var bak við gluggan í dag. Glöggir lesendur hafa áttað sig á að pistlahöfundur elskar jamækaromm —…

Rommrýni Magga Pjé · 2025-12-13 18:02 · 0 claps · 1.3 min read
#romm #rum #jamaica
Open on Medium ↗

13. desember: Navy Island XO Reserve — Jamæka

Augun lýstust upp þegar ég sá hvað var bak við gluggan í dag. Glöggir lesendur hafa áttað sig á að pistlahöfundur elskar jamækaromm — jafnvel meira en að tala um sjálfan sig í 3. persónu. Um jamækaromm, sögu þeirra og hefðir hef ég skrifað áður og vísa í þau skrif — sjá hér, hér og hér, svo ég sleppi því að endurtaka það raus núna. Nafnið Navy Island vísar í litla óbyggða eyju í hafnarmynni bæjarins Port Antonio á norð-austur-hluta Jamæka. Rommið er þó hvorki eimað þar, né kemur hráefnið þaðan, þar sem sú eyja er óbyggð. Reyndar sé ég það ekki svo glöggt hvar þessi rommgerð er staðsett á Jamæka. Eina staðsetningin á heimasíðu fyrirtækisins er póstfang í Amsterdam. Rommgerð þessi framleiðir tvö afbrigði — XO langþroskað sem við höfum fyrir framan okkur núna og Navy Strength sem er minna þroskað og í hærri styrk; bæði spennandi, hvort á sinn hátt. Látum oss smakka.

Eins og við vitum smakkar maður fyrst með augunum, og ég segi það strax: þetta er fallegur vökvi. Dökkur og tær og svo er eins og hann sér pínu seigur í glasinu, ekki eins og síróp, eða neitt þannig, en mér finnst hann samt seigari en vatn. Lyktin er sterk. Mólassar, gras, vorbrum og jamækafönkið taka þarna á móti manni og heilsa nösunum með þéttu handabandi. Bragðið er ekki eins sterkt og ég hélt, útfrá lyktinni. Þó finnur maður ávaxtabragð og já, þarna er fönkið. Áferðin á tungunni segir mér að þetta romm er eitthvað sykrað, þó er það ekki “sætt”. Eikin kemur síðan fram í eftirbragðinu, án þess að taka það yfir. Allt í allt, þá er þetta fyrirtaksdrykkur sem ég get hiklaust mælt með. Skál.


메타데이터
post_id
8fa962c14a85
slug
13-desember-navy-island-xo-reserve-jamæka-8fa962c14a85
url
https://medium.com/@rommrynimp/13-desember-navy-island-xo-reserve-jam%C3%A6ka-8fa962c14a85
canonical_url
https://medium.com/@rommrynimp/13-desember-navy-island-xo-reserve-jam%C3%A6ka-8fa962c14a85
author_url
https://medium.com/@rommrynimp
status
ok
fetched_at
2026-07-14 05:44:25