← Back to list

Fyrsta íslenska „hot sauce” sósan — Krónan

Við eeelskum nýjungar! Þess vegna erum við svo ánægð með að geta boðið upp á fyrstu íslensku „hot sauce” sósuna Bera, frá…

Krónan · 2019-08-07 10:18 · 0 claps · 1.8 min read
Open on Medium ↗

Fyrsta íslenska „hot sauce” sósan — Krónan

Við eeelskum nýjungar! Þess vegna erum við svo ánægð með að geta boðið upp á fyrstu íslensku „hot sauce” sósuna Bera, frá fjölskyldufyrirtækinu Lefever.

Um Lefever og hvernig sósan varð til

Það eru þau Óðinn og Gréta sem standa á bakvið litla fjölskyldufyrirtækið Lefever.

Þau kvöddu Kópavog haustið 2015 og lögðu leið sína alla leið á Djúpavog til að hægja aðeins á hinu daglega lífi og prófa eitthvað nýtt. Þar hafa þau stækkað við fjölskylduna og njóta sveitasælunnar í botn.

Hot sauce ævintýrið byrjaði með óhóflegum áhuga á sterkum mat , ást á matargerð og eftir að hafa mallað “hot sauce” sósur heima í eldhúsi í nokkur ár varð eeeldheita sósan „ Bera “ til.

Samvinna

Þau vinna í sameiningu í þessu eldheita ævintýri eftir bestu getu. Í upphafi hefur Óðinn séð um þorra vinnunnar með aðstoð góðra vina, á meðan Gréta heldur öllu gangandi á heimavígstöðvunum. Í framtíðinni sjá þau þau þó fram á að vinna að þessu hlið við hlið og ef vel gengur að bæta við starfsfólki og efla atvinnulífið á Djúpavogi.

Bera passar með öllum mat

Bera “hot souce” sósuna má nota á allt! Hún er frábrugðin öðrum heitum sósum að því leyti að hún inniheldur hátt hlutfall af ávöxtum. Þetta skilar mikilli sætu í sósuna sem er hennar sérkenni. Hún passar sérstaklega vel ofan á allt fiskmeti en er einnig frábær í vefjuna, á samlokuna, ofan á/í túnfisksalatið, á borgarann, á pizzuna í pastarétti, ofan á eggin á morgnana og bara hvað sem er! Lykillinn að því að njóta Beru til hins ýtrasta er að prófa hana á allt milli himins og jarðar.

Psst.. Sósan er ekki aðeins ævintýralega góð á bragðið heldur einnig vegan — glútenlaus og sykurlaus! Er hægt að biðja um meira?

Við mælum með að þú fylgist með Lefever á samfélagsmiðlum.

Instagram: *https://www.instagram.com/lefeversauce*

Facebook: *https://www.facebook.com/Lefever-Hot-Sauce-253571085513834*

Hvar fæst sósan:

· Krónan Grandi

· Krónan Reyðarfjörður

· Krónan Lindir

· Krónan Mosfellsbær

· Krónan Bíldshöfði

· Krónan Flatahraun

Originally published at https://kronan.is on August 7, 2019.


메타데이터
post_id
bdc7bb6df46d
slug
fyrsta-íslenska-hot-sauce-sósan-krónan-bdc7bb6df46d
url
https://medium.com/@kronan/fyrsta-%C3%ADslenska-hot-sauce-s%C3%B3san-kr%C3%B3nan-bdc7bb6df46d
canonical_url
https://medium.com/@kronan/fyrsta-%C3%ADslenska-hot-sauce-s%C3%B3san-kr%C3%B3nan-bdc7bb6df46d
author_url
https://medium.com/@kronan
status
ok
fetched_at
2026-07-29 14:08:32