Topp 5 léttbjórar í Krónunni
Það getur verið svo gott að svala sér á góðum léttbjór yfir hátíðarnar og því nauðsynlegt að vera búin að byrgja kælinn af sínum uppáhalds…
Topp 5 léttbjórar í Krónunni

Það getur verið svo gott að svala sér á góðum léttbjór yfir hátíðarnar og því nauðsynlegt að vera búin að byrgja kælinn af sínum uppáhalds fyrir þær. Það er okkar von að þessi listi komi til með að aðstoða þig í að finna þinn uppáhalds.

1# Ceres Jule Hvítöl — 1,9%
Fyrir suma byrja ekki jólin fyrir en Ceres hvítöl er komið í kæli. Þrátt fyrir að nafnið gefi annað til kynna, er hvítöl dökkur og sætur léttbjór sem á rætur sínar að rekja til Danmerkur.
Verð: 99 Kr.- Hvar: Í öllum verslunum Krónunnar.

2# Jólakaldi léttöl — 2,25%
Jólakaldi léttölið er rauðleitt að lit og sætt með létta beiskju, bruggað úr hágæða Tékknesku byggi og tékkneskum humlum.
Verð: 199 Kr.- Hvar: Í öllum verslunum Krónunnar.

3# Krombacher Pilsner — 0,0%
Þetta er vinsælasti áfengislausi pils í Þýskalandi. Þarf að vita meira? Við mælum með því að drekka hann ííísskaldan beint úr ísskápnum.
Verð: 189 Kr.- Hvar: Akrabraut, Akranesi, Bíldshöfða, Fitjum, Flatahrauni, Grafarholti, Granda, Lindum, Mosfellsbæ, Vallakór, Reykjanesbæ og Selfoss.

4# BrewDog Nanny state — 0,5%
Brewdog hefur farið sigurför um heiminn og hér er þeirra tvist á léttbjór. Nanny State er Pale Ale sem svíkur engan.
Verð: 319 Kr.- Hvar: Akrabraut, Akranesi, Bíldshöfða, Flatahrauni, fitjum, Grafarholti, Granda, Lindum, Mosfellsbæ, Vallakór, Reykjanesbæ og Selfoss.

5# Krombacher hveitiöl — 0,4%
Taktu bragðlaukana í ævintýraför með þessum hveitibjór frá Krombacher. Hann getur vel komið í stað sykraðra gosdrykkja.
Verð: 189 Kr.- Hvar: Bíldshöfða, Flatahrauni, Granda, Lindum, Mosfellsbæ og Selfsoss.
*Verð miðast við 13.11.2018, kl: 14:00
메타데이터
- post_id
- dddd0f7bf08a
- slug
- topp-5-gæðabjórar-í-krónunni-dddd0f7bf08a
- url
- https://medium.com/@kronan/topp-5-g%C3%A6%C3%B0abj%C3%B3rar-%C3%AD-kr%C3%B3nunni-dddd0f7bf08a
- canonical_url
- https://medium.com/@kronan/topp-5-g%C3%A6%C3%B0abj%C3%B3rar-%C3%AD-kr%C3%B3nunni-dddd0f7bf08a
- author_url
- https://medium.com/@kronan
- status
- ok
- fetched_at
- 2026-07-29 22:12:45